Spurt & Svarað - Leiðbeiningar

Fyrir hvaða aldur hentar SwimFin ?
SwimFin hentar börnum frá 2ja-4ja ára aldri eftir stærð og þroska.
SwimFin er ekki hannað fyrir ungbörn sem hafa enn ekki náð fullri stjórn á efri hluta líkamans og grunnfærni í hreyfingum. SwimFin var hannað fyrir börn frá um það bil 2 ára aldri og eldri, en við höfum fengið fjölda tilkynninga frá foreldrum og kennurum um 18 mánaða börn sem hafa notað SwimFin. Metið fyrir yngsta barnið sem gat notað SwimFin án aðstoðar er fimmtán mánaða.

Fylgja bönd með SwimFin?
Já, SwimFin kemur með einu pari af venjulegum bönd.


Eru til leiðbeiningar hvernig á að nota SwimFin ?
JÁ! Hvert SwimFin kemur með notendahandbók sem útskýrir hvernig á að stilla það og leiðbeiningar um umhirðu. Einnig má finna skýringar undir flipanum „How SwimFin Works“ á vefsíðunni.

Við mælum eindregið með því að foreldri eða kennari aðstoði barn á fyrstu stigum þar til það er orðið öruggt með SwimFin. Þegar barnið hefur vanist flotinu veit það ósjálfrátt hvað það á að gera – og þá hefst frelsið og gleðin. Sum börn ná þessu strax, en yngri börn og þau sem eru óöruggari geta þurft aðeins lengri tíma.

Það eru engar fastar reglur um hvernig eigi að nota SwimFin – þróunin á að vera eðlileg þar til barnið sjálft gefur til kynna hvenær sé tímabært að sleppa takinu. SwimFin hentar öllum aldri og getu, en hvernig það nýtist einu barni á ákveðnum aldri og getustigi getur verið allt öðruvísi en hjá barni á öðrum aldri eða með aðra getu.

ALDREI má bera SwimFin framan á líkamanum.

Hvernig á vera með SwimFin á sér ?
Best er að vera með SwimFin eins ofarlega og hægt er því ef það er of neðarlega er hætta á að það velti barninu framfyrir sig. Við mælum með að efri ólin sé þvert yfir brjóstkassann.

Má ég setja SwimFin að framnverðu ?

- NEI, festa alltaf swimfin á bakinu

Ólarnar eru of stórar, hvað get ég gert ?
Þá getur þú fest stytt þær með því að festa franska rennilásinn saman í einskonar lykkju til að stytta ólina.

Ólarnar eru of litlar, hvað get ég gert ?
Ólarnar sem fylgja með passa á flesta frá börnum uppí fullorðna þar sem þær eru gerðar úr mjúku teygjanlegu efni. Þar sem æ fleiri fullorðnir og stærri börn eru að nota SwimFin höfum framleitt stærri ólar sem hægt er að kaupa hér.

Svona notar þú Sunduggann

  • Sunduggi á alltaf að vera á bakinu.
  • Efra band yfir brjóstkassa, strekkja þétt og merkið snýr fram.
  • Virkar sem kútur, mest í lóðréttri stöðu, óþarfi að nota armkúta með.
  • Stuðlar að réttri líkamsstöðu barnsins.
  • Gott jafnvægi, hendur og fætur frjálsar.
  • Með yngstu börnin er gott að vera með þau fyrir framan sig og láta þau halda í fingurna á sér þannig að þau sjái mann og draga þau þannig um laugina og leyfa þeim að finna hvernig Sundugginn virkar.
  • Sunduggi snýr ofan í vatnið þegar barnið er á bakinu.
  • Aldrei skilja barn eftir án eftirlits.
  • Skola böndin með köldu vatni eftir notkun.